Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 19. júlí 2020 18:52
Arnar Helgi Magnússon
Andri Hjörvar: Get ekki verið annað en stoltur
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Andri Hjörvar Albertsson, þjálfari Þórs/KA var stoltur af sínum stelpum eftir 2-1 tap gegn Selfossi í dag. Þór/KA komst yfir í leiknum en Selfyssingar snéru leiknum sér í hag í byrjun síðari hálfleiks.

„Þrátt fyrir að ég sé svekktur með úrslitin þá get ég ekki verið annað en stoltur af stelpunum mínum í dag. Þær lögðu sig allar fram og uppskáru því miður ekkert úr leiknum," sagði Andri eftir leik.

Lestu um leikinn: Selfoss 2 -  1 Þór/KA

„Virkilega vel gert hjá þeim það sem þær gerðu, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þvílík barátta og vinnusemi. Ég hefði að sjálfsögðu viljað fara með það inn í seinni hálfleikinn en það bara klikkaði í dag."

Andri segir að sínar stelpur hafi misst einbeitingu á því tímabili sem að Selfyssingar náðu forystunni.

„Það þýðir ekki að eiga fimm mínútna einbeitingarleysi og hleypa inn mörkum. Við þurfum að vinna fyrir hlutunum. Leikurinn er 90 mínútur en ekki 45 mínútur."

Harpa Jóhannsdóttir, markvörður Þórs/KA, gerði sig seka um slæm mistök í síðasta leik en kom tvíefld til baka í dag og varði meðal annars vítaspyrnu.

„Þetta er frábært stelpa og ég hef fulla trú á henni. Hún sýndi það í dag að hér er á ferðinni frábær markmaður. Þetta er bara frábært svar hjá henni eftir þessa gagnrýni sem hún fékk eftir síðasta leik," sagði Andri.

Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner