Fotbolti.net
09.07.26 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Samruni í umboðsheimum - Aukin tækifæri fyrir íslenska leikmenn

Bruno Fernandes er eitt stærsta nafnið sem er á samningi hjá AS1 umboðsskrifstofunni.

Bruno Fernandes er eitt stærsta nafnið sem er á samningi hjá AS1 umboðsskrifstofunni.

Canon

Mynd: EPA

Það eru tíðindi úr heimi umboðsmanna því danska umboðsskrifstofan Elite Consulting er nú orðinn hluti af AS1 skrifstofunni. Markmiðið er skýrt: að stækka möguleikana fyrir leikmennina og þjálfarana sem Elite Consulting hefur séð um. Spennandi íslenskir leikmenn geta einnig grætt á þessu.

FIFA umboðsmaðurinn Halldór Ragnar Emilsson hefur séð um leikmenn á Íslandi fyir Elite Consulting og hann hefur hjálpað leikmönnum að átta sig á þeirra tækifærum og leiðbeint þeim með ferla þeirra.
AS1 er ein stærsta umboðsskrifstofa í heimi og eru leikmenn eins og Bruno Fernandes (Man Utd), Luis Díaz (Bayern) og Nuno Mendes (PSG) á meðal leikmanna sem eru á mála hjá skrifstofunni. Þá er Ruben Amorim (AC Milan) einn af þjálfurunum sem hefur nýtt sér aðstoð AS1.

Daninn Victor Froholdt (Porto) er samkvæmt Transfermarkt verðmætasti leikmaðurinn sem Elite Consulting sér um málin hjá. Verðmætustu Íslendingarnir eru svo Mikael Anderson (AGF), Daníel Freyr Kristjánsson (Lyngby) og Róbert Frosti Þorkelsson (GAIS). Danski meistarinn Tómas Óli Kristjánsson (2008) er einnig á mála hjá Elite Consulting. Ungstirnin Arnar Bjarki Gunnleifsson og Bjarki Hrafn Garðarsson, báðir fæddir 2010 og hafa spilað í Bestu deildinni í sumar, eru einnig á mála hjá Elite Consulting.

Eftir samrunann geta tækifæri þessara leikmanna aukist þar sem tengslanetið er orðið enn stærra.


FIFA umboðsmaðurinn Halldór Ragnar.

FIFA umboðsmaðurinn Halldór Ragnar.

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.