Fotbolti.net
19.09.20 - 18:51
Ívan Guðjón Baldursson

Bale: Ég er hungraður og metnaðarfullur

Bale getur ekki beðið eftir að spila aftur fyrir Tottenham. Hann er þó meiddur og verður ekki klár í slaginn fyrr en um miðjan október.

Bale getur ekki beðið eftir að spila aftur fyrir Tottenham. Hann er þó meiddur og verður ekki klár í slaginn fyrr en um miðjan október.

Canon

Mynd: Getty Images

Gareth Bale hefur ekki spilað mikla knattspyrnu að undanförnu en sagði frá sínu mikla hungri í viðtali við vefsíðu Tottenham eftir að félagaskipti hans voru staðfest í dag.
Hinn 31 árs gamli Bale kemur til Tottenham á lánssamningi sem gildir út tímabilið. Spurs er talið greiða 20 milljónir fyrir lánssamninginn þegar ofurlaun velsku stórstjörnunnar eru talin með.

„Það er gott að vera kominn aftur til þessa frábæra félags. Hérna varð ég frægur, hjá þessu stórkostlega félagi með stórkostlega stuðningsmenn," sagði Bale.

„Það er ótrúlegt að vera kominn aftur. Vonandi kemst ég í gott leikform og vonandi get ég hjálpað liðinu að vinna titla. Þegar ég yfirgaf félagið á sínum tíma hugsaði ég með mér að ég þyrfti að koma hingað aftur. Núna greip ég tækifærið og er ánægður með stöðuna.

„Mér líður eins og þetta sé góð tímasetning fyrir mig. Ég er hungraður og metnaðarfullur og vill gera mitt besta fyrir liðið. Ég get ekki beðið eftir að byrja."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.