19.10.26 - 11:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óli Skúla: Ég er með samning út næsta tímabil

Ólafur Ingi tók við Blikum fyrir rétt rúmlega ári síðan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bikarmeistaratitlinum fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ólafur Ingi tók við Blikum fyrir rétt rúmlega ári síðan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framtíð Ólafs Inga Skúlasonar sem þjálfari Breiðabliks hefur verið í umræðunni síðustu vikur og ekki allir á því sem ræða um deildina vissir um að hann eigi að halda áfram með liðið. Ólafur Ingi tók við liðinu fyrir rétt rúmu ári síðan eftir að hafa stýrt U21 landsliðinu.
Hann gerði liðið að bikarmeisturum í ár en spilamennskan og gengi liðsins í Bestu deildinni hefur hins vegar ekki staðist væntingar.
Í risastóra íslenska slúðurpakkanum voru nöfn eins og Jökull Elísabetarson, Magnús Már Einarsson og Eiður Smári Guðjohnsen orðuð við þjálfarastöðuna hjá Blikum.

TENGT EFNI
Formaður Breiðabliks: Hjá okkur eru einstök störf ekki undir í einstökum leikjum
Ólafur Ingi var spurður út í sína framtíð í viðtali eftir leikinn gegn Víkingi á föstudag. Verður þú áfram með Blika á næsta tímabili?
„Já, ég er með samning út næsta tímabil, þannig ég veit ekki betur."
Þjálfarinn var einnig spurður út í leikmenn sem hafa verið orðaðir í burtu frá félaginu. Þeir Höskuldur Gunnlaugsson, Viktor Örn Margeirsson og Viktor Karl Einarsson hafa verið orðaðir við Val.
„Nei, þeir eru bara okkar leikmenn. Þetta eru Blikar, við elskum að hafa þá hérna og þeir eru ekki að fara neitt."
Aron Bjarnason hefur verið orðaður við Þrótt. Verður hann áfram?
„Já," sagði þjálfarinn einfaldlega.
„Já, ég er með samning út næsta tímabil, þannig ég veit ekki betur."
Þjálfarinn var einnig spurður út í leikmenn sem hafa verið orðaðir í burtu frá félaginu. Þeir Höskuldur Gunnlaugsson, Viktor Örn Margeirsson og Viktor Karl Einarsson hafa verið orðaðir við Val.
„Nei, þeir eru bara okkar leikmenn. Þetta eru Blikar, við elskum að hafa þá hérna og þeir eru ekki að fara neitt."
Aron Bjarnason hefur verið orðaður við Þrótt. Verður hann áfram?
„Já," sagði þjálfarinn einfaldlega.

Bikarmeistaratitlinum fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sauð á Óla Skúla: Kýla menn kalda á fótboltavelli á ekki að sjást
Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 26 | +51 | 63 |
| 2 | KR | 26 | +30 | 53 |
| 3 | Fram | 25 | +11 | 46 |
| 4 | Breiðablik | 26 | +2 | 36 |
| 5 | ÍA | 25 | -3 | 34 |
| 6 | Keflavík | 26 | -11 | 29 |