Fotbolti.net
19.10.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Áhyggjufullur og kvíðinn fyrir leiknum gegn Liverpool

Fernando Roig og Inigo Perez, stjóri Villarreal

Fernando Roig og Inigo Perez, stjóri Villarreal

Canon

Mynd: EPA

Villarreal heimsækir Liverpool í 3. umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar á þriðjudaginn.

Fernando Roig, forseti Villarreal, hefur verið forseti félagsins í 30 ár en hann er alltaf jafn stressaður fyrir öllum leikjum.
„Ég verð ekki stressaður. Það er verra: Ég verð áhyggjufullur og mjög kvíðinn. Ég þjáist mikið," sagði Roig.

„Það er tilinningaþrungið að spila gegn Liverpool. Þetta er í fyrsta sinn sem við mætum þeim, það þriðja á Anfield. Hin tvö skiptin voru undanúrslit í Evrópu."

„Ég mun fara að horfa á U19 liðið um morguninn, sem er gaman. Svo er leikurinn, sem ég nýt ekki. Svo fljúgum við mjög seint heim. Þetta er stressandi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.