Fotbolti.net
01.09.26 - 15:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Formaður Breiðabliks: Hjá okkur eru einstök störf ekki undir í einstökum leikjum

Flosi Eiríksson er formaður fótboltadeildar Breiðabliks.

Flosi Eiríksson er formaður fótboltadeildar Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gengi Breiðabliks hefur verið undir væntingum á tímabilinu. Liðið hefur setið í 4. sæti deildarinnar í langan tíma og er þrettán stigum frá Evrópusæti í deildinni þegar átján stig eru í pottinum. Breiðablik hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni og liðin fyrir neðan eru farin að nálgast. Markatalan kemur í veg fyrir að Blikar eigi raunverulega á hættu að detta niður í neðri hlutann fyrir tvískiptingu.

Framundan hjá Breiðabliki er útileikur gegn KA í 22. umferð Bestu deildarinnar og fimm dögum seinna er svo bikarúrslitaleikur, sá fyrsti síðan 2018, gegn Lengjudeildarmeisturunum í Aftureldingu. Í úrslitaleiknum er bikar í boði og næst verðmætasta Evrópusætið sem í boði er á ári hverju.
Fótbolti.net ræddi við Flosa Eiríksson sem er formaður fótboltadeildar Breiðabliks.

Hann var spurður hvort að starfið hjá Ólafi Inga Skúlasyni, þjálfara liðsins, væri undir í úrslitaleiknum.

„Það er ekki hægt að draga fjöður yfir það að gengið að undanförnu hefur verið erfitt og ekki eins og við vonuðumst eftir. En við höfum fulla trú á liðinu og teyminu, að þeir nái vopnum sínum og komi tvíefldir í næstu leiki, bæði gegn KA í næstu viku og svo í bikarúrslitaleikinn. Það er ekki þannig hjá okkur að einstök störf séu undir í einstökum leikjum," segir Flosi.

Er eitthvað sem þið í stjórninni sjáið utan frá?

„Það sjá það allir að þetta hefur ekki verið nógu gott. Ég treysti því að leikmenn og þjálfarar finni á því lausnir."

Úrslitin eru eitt og spilamennskan annað, horfið þið kannski á þetta saman, að hvorugt hafi verið nógu gott?

„Þetta hefur verið erfitt. Auðvitað höfum við oft spilað ágætlega, eins og gengur. En staðan í deildinni lýgur ekki og við þurfum að gera betur."

Tveir reynsluboltar orðaðir við Val
Tveir miklir Blikar, Höskuldur Gunnlaugsson og Viktor Örn Margeirsson hafa verið orðaðir við Val að undanförnu, en þeirra gamli þjálfari, Halldór Árnason, mun taka við Val eftir tímabilið. Hefur framtíð þeirra eitthvað komið til tals?

„Við höfum ekki verið að ræða það. Mér sýndist nú Höskuldur svara þessu ágætlega hjá ykkur (í gær)."
Höskuldur: Einhver æsifréttamennska sem er í gangi
TENGT EFNI

Höskuldur: Einhver æsifréttamennska sem er í gangi


Stefnan alltaf sett á Evrópusæti
Yrðu það algjör vonbrigði að ná ekki Evrópusæti á þessu tímabili?

„Við stefnum alltaf að því að ná Evrópusæti og höfum gert það síðustu sjö af átta árum ef ég man rétt. Við stefnum að því og teljum að við munum gera það."

Breiðablik missti af Evrópusæti í fyrra og þar á undan hafði liðið samfleytt náð Evrópusæti frá árinu 2017.

Björt framtíð í Smáranum
Það hefur verið talsvert um meiðsli lykilmanna hjá Blikum á tímabilinu og margir yngri leikmenn fengið sénsinn. Það er t.d. búið að selja Arnar Bjarka Gunnleifsson (2010) út og Þór Andersen Willumsson (2009) hefur fengið nokkra leiki. Er það það sem þið takið jákvætt út úr þessu?

„Í gegnum tíðina höfum við verið með mjög öflugt yngri flokka starf og erum að uppskera nú eins og oft áður úr því. Það er ofboðslega mikill fjöldi af okkar leikmönnum uppaldir í Smáranum, bæði þessir ungu sem þú nefnir og líka þeir eldri. Við höldum því bara áfram. Auðvitað er gaman að sjá þessa stráka stíga skref, hvort sem það er inn á völlinn hjá okkur eða að fara út. Ágúst Orri farinn frá okkur til Hollands (Excelsior) og það verður gaman að fylgjast með honum þar. Framtíðin er björt, eins og oftast í Smáranum," segir Flosi að lokum.
Ólafur Ingi Skúlason tók við sem þjálfari Breiðabliks síðasta haust.

Ólafur Ingi Skúlason tók við sem þjálfari Breiðabliks síðasta haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það hefur gengið illa hjá Blikum að undanförnu.

Það hefur gengið illa hjá Blikum að undanförnu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Breiðabliks. Hann hefur verið orðaður við Val, í bakgrunn má sjá Viktor Örn Margeirsson sem sömuleiðis hefur verið orðaður við Val.

Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Breiðabliks. Hann hefur verið orðaður við Val, í bakgrunn má sjá Viktor Örn Margeirsson sem sömuleiðis hefur verið orðaður við Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það sjá það allir að þetta hefur ekki verið nógu gott. Ég treysti því að leikmenn og þjálfarar finni á því lausnir

Það sjá það allir að þetta hefur ekki verið nógu gott. Ég treysti því að leikmenn og þjálfarar finni á því lausnir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2Fram21+1444
3KR20+2743
4Breiðablik21+330
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Stjarnan21-827
8Valur21-724
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.