Fotbolti.net
19.11.20 - 16:00
Magnús Már Einarsson

Pulisic og Thiago Silva ekki með Chelsea - Havertz klár

Christian Pulisic.

Christian Pulisic.

Canon

Mynd: Getty Images

Christian Pulisic verður ekki með Chelsea gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Pulisic meiddist fyrir landsleikjahlé og er ennþá frá keppni en Frank Lampard, stjóri Chelsea, staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag.

Varnarmaðurinn reyndi Thiago Silva kom aftur til Englands í dag eftir langt ferðalag frá Suður-Ameríku og Lampard telur ólíklegt að hann spili gegn Newcastle.
Kai Havertz er búinn í einangrun eftir að hafa greinst með kórónuveiruna.

Havertz hefur æft að mestu leyti einn undanfarið en hann gæti komið við sögu í leiknum á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.