Fotbolti.net
20.06.25 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Verða Pogba og Onana liðsfélagar á næsta tímabili?

Andre Onana, markvörður Man Utd.

Andre Onana, markvörður Man Utd.

Canon

Mynd: EPA

Mónakó er að gera áhugaverða hluti á markaðnum í sumar. Paul Pogba er sagður í viðræðum við félagið og núna er Andre Onana einnig orðaður þangað.
Mónakó er að leita að nýjum markverði og er Onana að vekja áhuga félagsins.

Onana átti erfitt tímabil með Manchester United og félagið er sagt tilbúið að hleypa honum í burtu ef rétta tilboðið kemur.

Onana hefur verið í fríi undanfarnar vikur en þegar hann var stoppaður af fréttamanni á dögunum og spurður út i framtíð sína hjá Man Utd, þá sagði hann:

„Fer ég frá félaginu? Ég veit það ekki, við sjáum til."

Mónakó er á leið í Meistaradeildina á næsta tímabili og spurning hvort Onana verði í markinu þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.