Fotbolti.net
20.07.26 - 12:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ítalir reyna að sannfæra Guardiola

Ítalir reyna að sannfæra Guardiola
Canon

Mynd: EPA

Ítalska fótboltasambandið hefur hitt Pep Guardiola og reynt að sannfæra hann um að taka við sem þjálfari karlalandsliðsins. Það er Sky á Ítalíu sem greinir frá.

Paolo Maldini og ráðgjafi hans, Leonardo, fóru til Barcelona til að ræða við Guardiola sem er án starfs eftir að hafa hætt hjá Manchester City í vor.
Það er ekki ljóst hvort að Guardiola vilji starfi, en ítalska sambandið er að reyna sannfæra hann um að taka við liðinu.

Aðrir kostir á þessum tímapunkti eru Roberto Mancini og Andrea Pirlo.

Ítalía varð Evrópumeistari 2021 en hefur ekki komist á síðustu þrjú heimsmeistaramót. Liðið situr í 15. sæti á heimslista FIFA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.