Fotbolti.net
20.07.26 - 22:05
Haraldur Örn Haraldsson

Ívar Örn mjóg ásáttur við dómarann - „Hafði ekki hreðjarnar í að dæma"

Auglýsing
Kristján Flóki traðkaði á Ívari

Kristján Flóki traðkaði á Ívari

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ákveðinn hnetubrjótur þessi leikur, járn í járn og við vissum að þetta yrði slagsmál," sagði Ívar Örn Árnason leikmaður Breiðabliks eftir 0-0 jafntefli við FH í Kaplakrika í kvöld.
Lestu um leikinn: FH 0 - 0 Breiðablik

„Við þurfum að horfast við það að við erum svolítið mikið gervigras lið, og komum á rennisléttan grasvöll í dag. Það bara tekur smá tíma, við erum lengi í gang í fyrri hálfleik. Svo fannst mér við bara taka öll völd á þessum leik. Skorum fullkomlega löglegt mark, ég bara skil ekki af hverju hann flautar, hann bara dæmir eitthvað brot. Ég náttúrulega bara hleyp fram fyrir alla þannig ég sé það ekki. Svo fáum við aukaspyrnu á stórhættulegum stað, og skjótum í varnarmann. Það fer beint í höndina, þetta er bara pjúra víti og gerist beint fyrir framan hann. Hann bara hafði ekki hreðjarnar í að dæma þetta í dag, stundum er það bara þannig. Sem varnarmaður er ég sáttur með hreint lak, við vorum flottir varnarlega. Þetta var leikur sem endaði í fram og til baka. Bæði lið vildu vinna þennan leik, hvorugt lið vildi tapa þessum leik. Þannig hvorugt liðið var að gefa kannski allt of mikið í sóknarleikinn, án þess að fórna varnarleiknum. Svona á heildina litið er þetta bara fínt, þetta er erfiður völlur og þeir eru komnir á ágætis ról. Þannig bara áfram gakk," sagði Ívar.

Það er nokkuð augljóst að gestirnir voru frekar ósáttir við dómarann, og Ívar segir að ákvarðanir hans hafi verið það sem gerir út um leikinn.

„Ekki spurning, í svona jöfnum leikjum þá eru þetta bara litlu atriðin. Við vissum að þetta myndi kosta annaðhvort mistök frá þeim eða okkur til þess að það yrði mark. Mér finnst við gera nóg til að skora í þessum leik, ekki spurning. En dómarinn hefur séð eitthvað, ég veit það ekki. Eins og ég segi þá hleyp ég fram fyrir alla og sé bara boltann í netinu og kem ekki við neinn. Ég er langt frá því að vera rangstæður, ég spurði línuvörðinn og hann sagði: „Ég veit ekki, hann dæmir þetta." Þannig að hann verður að standa með þessu og útskýra fyrir þetta. Það verður örugglega hægt að sjá þetta í myndavélunum á eftir," sagði Ívar.

Í seinni hálfleik lendir Ívar síðan í því að Kristján Flóki leikmaður FH stígur á hann meðan hann liggur í grasinu, en aftur var ekkert dæmt.

„Þeir velja alveg hvenær þeir eru með opin augu, og hvenær þeir loka þeim. Flóki er bara keppnismaður eins og ég, maður þarf að gera allt til þess að vinna, sama hversu harkalega þú gerir það. Hann er algjör fantur, og ég á eftir að taka í hann fyrir þetta, það er ekki spurning," sagði Ívar með bros á vör.

Viðalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Sjáðu vafaatriðin:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.