Ólafi Inga finnst skrítið að Flóki hafi ekki fengið rautt - „Greinilega gerir þetta viljandi"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var baráttuleikur," sagði Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks eftir 0-0 jafntefli gegn FH í Kaplakrika í kvöld.
„Það voru stór atriði í fyrri hálfleik sem mér fannst ekki falla okkar megin. Spilanlega séð fannst mér við byrja svolítið 'sloppy', það tók okkur tíma að komast í takt. Svo fannst mér við ofan á síðasta korterið í síðari hálfleik. Náðum að þrýsta þeim aðeins niður og búa til eitthvað. Við skorum auðvitað löglegt mark, sem er tekið af okkur, eigum að fá víti. Þannig það er svekkjandi. Seinni hálfleikur er spilaður á þeirra forsendum, þetta er mikið um kílingar og völlurinn verður stór, þeir voru betri í að ná í seinni bolta og sköpuðu sér hættulegri færi en við í seinni hálfleik. Þannig við náðum ekki þeirri stjórn á leiknum sem við vildum í seinni hálfleik," sagði Ólafur.
Breiðablik skoraði mark sem var dæmt af, og vildu fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Gestirnir voru ósáttir með þessar ákvarðanir, en Ólafur var ekki tilbúinn að staðhæfa að það hefði breytt úrslitunum.
„Við komum nú aldrei til með að vita það, hvort það sé staðan. Auðvitað hefði þetta breytt gangi leiksins, og auðvitað hjálpar það að komast yfir í leik. Þetta eru tvær mjög stórar ákvarðanir, sem ég á mjög erfitt með að átta mig á. Ég er búinn að sjá þetta aftur, og þetta er voða lítið í aukaspyrnunni sem að Ívar skorar úr. Svo er þetta náttúrulega klárlega hendi í aukaspyrnunni sem Hlynur tekur. Þannig auðvitað er þetta bara stundum svona, við höfum alveg ekki fengið á okkur víti þegar mögulega við hefðum átt að fá á okkur víti í sumar. Þetta gerist bara og það er ekkert sem að við þurfum eitthvað að dvelja við, en auðvitað er það svekkjandi þegar það kemur upp," sagði Ólafur.
Seint í leiknum steig Kristján Flóki ofan á bringuna á Ívari Erni leikmann Breiðabliks þegar hann lág í grasinu, en aftur ekkert dæmt.
„Kristján Flóki á svo skalla í stöngina, það hefði verið athygisvert ef að það hefði legið inni. Hann hefði náttúrulega bara átt að fá rautt spjald, hann bara greinilega gerir þetta viljandi. Mér finnst þetta skrítið því mér finnst eins og dómarinn horfi í áttina að honum og mér finnst eins og hann eiga að sjá þetta. En aftur það er bara partur af leiknum," sagði Ólafur.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Sjáðu vafaatriðin:

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð





