Fotbolti.net
20.08.13 - 12:35
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið vikunnar í enska - Tveir nýliðar

Robin van Persie er í fremstu víglínu.

Robin van Persie er í fremstu víglínu.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildin er farin af stað en fyrsta umferðin er að baki. Líkt og síðustu tímabil þá birtir Fótbolti.net úrvalslið vikunnar í deildinni sem sótt er úr öllum áttum.

Að þessu sinni leitum við til Goal.com sem valdi eftirfarandi úrvalslið:


Antonio Luna hjá Aston Villa er annar af tveimur nýliðum í deildinni sem kemst í úrvalsliðið. Þessi ungi spænski varnarmaður gekk í raðir Villa frá Sevilla í sumar og kemst í liðið fyrir frábæra frammistöðu sína í útisigrinum gegn Arsenal. Liðsfélagi hans Gabriel Agbonlahor kemst einnig í liðið.

Fernandinho sem kom frá Shaktar Donetsk til Manchester City er hinn nýliðinn en hann var flottur þegar City slátraði Newcastle í gær.

Simon Mignolet byrjar vel hjá Liverpool og varði vítaspyrnu í verðskulduðum sigri Liverpool gegn Stoke. Kolo Toure var traustur í vörninni, las leikinn vel, og kemst einnig í liðið ásamt Daniel Sturridge sem skoraði markið sem réði úrslitum. Liverpool á flesta fulltrúa þessa vikuna.

Seamus Coleman hjá Everton var maður leiksins í 2-2 jafntefli gegn Norwich. Frank Lampard og Oscar voru meðal markaskorara í sigri Chelsea á Hull og eru báðir í úrvalsliðinu.

Síðast en ekki síst er það markavélin Robin van Persie sem skoraði tvö mörk þegar Manchester United vann Swansea örugglega. Danny Welbeck liðsfélagi hans skoraði einnig tvö en missir naumlega af sæti í liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.