Arnór Ingvi Traustason er með áritaða Malmö FF á lottó uppboði til styrktar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
Hann er lykilmaður í sterku liði Malmö sem er í sænsku toppbaráttunni um þessar mundir og að reyna að komast í gegnum undankeppni Evrópudeildarinnar.
Kostar aðeins 1000kr miðinn og getur þú nælt þér í hann á vefsíðu CharityShirts.
Vinningshafi verður dreginn út mánudaginn 26. Ágúst kl 19:00. Allur ágóði rennur til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
Samtals hefur CharityShirts safnað 1.756.000kr til góðgerðamála í samstarfi við íslenska atvinnumenn í knattspyrnu og körfubolta.
Athugasemdir