Fotbolti.net
20.08.26 - 18:54
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool sýnir Endrick áhuga

Liverpool sýnir Endrick áhuga
Canon

Mynd: EPA

Liverpool hefur sýnt brasilíska sóknarmanninum Endrick áhuga síðustu daga. Þetta kemur fram hjá brasilísku útgáfu ESPN.
Endrick er sagður inni í áætlunum Jose Mourinho hjá Real Madrid, þótt þessi tvítugi framherji muni líklega ekki fá stórt hlutverk vegna mikillar samkeppni í sókninni.

Brasilíumaðurinn hefur heillað á æfingum og fengið treyju númer níu fyrir komandi tímabil, en nokkur félög hafa þó áhuga á að fá hann á láni.

Aston Villa og Roma reyndu að fá Endrick á dögunum og nú hefur Liverpool einnig sýnt honum áhuga.

ESPN segir Endrick engan áhuga hafa á að yfirgefa Real Madrid og Mourinho vilji halda honum. Staðan gæti breyst áður en glugginn lokar en eins og er stefnir allt í að hann verði áfram í Madríd.

Endrick lék með Lyon á láni síðari hluta síðasta tímabils og skoraði átta mörk í 21 leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.