20.08.26 - 18:45
Brynjar Ingi Erluson
Villa leitar að arftaka Konsa - Southampton hafnaði átján milljóna tilboði

Mynd: Southampton

Mynd: Southampton
Aston Villa er í dauðaleit að miðverði fyrir komandi tímabil, en tilboði félagsins í Taylor Harwood-Bellis var hafnað af Southampton í dag.
Aston Villa er að selja Ezri Konsa til Arsenal fyrir 51 milljón punda og verður gengið frá félagaskiptunum á næstu dögum.
Enskir fjölmiðlar segja Villa þegar farið að leita að arftaka hans og er Harwood-Bellis hjá Southampton einn þeirra sem koma til greina.
Villa bauð átján milljónir punda í þennan 24 ára gamla miðvörð en Southampton hafnaði tilboðinu.
Samkvæmt Sky var það töluvert undir verðmati B-deildarfélagsins. Harwood-Bellis á tvö ár eftir af samningi sínum.
Benfica reyndi einnig að kaupa Harwood-Bellis í síðustu viku en Southampton hafnaði tilboði upp á sautján milljónir punda. Portúgalska félagið sneri sér í kjölfarið að Ítalanum Alessandro Circati hjá Parma.
Ekki liggur fyrir hvort Villa muni koma aftur með hærra tilboð.