Ronald Koeman, þjálfari Barcelona, íhugar að hafa Sergi Roberto ekki í leikmannahópi Börsunga í kvöld þegar liðið mætir Granada.
Þessi 29 ára gamli leikmaður, sem hefur spilað allan sinn feril fyrir Barcelona, fékk að heyra það frá stuðingsmönnum Barcelona eftir tapleikinn slæma gegn Bayern Munchen í Meistaradeild Evrópu.
Miðilinn Marca skrifaði um það að Roberto hafi hágrátið í búningsklefanum eftir leikinn og nú hefur það komið í ljós að Koeman íhugi að gefa leikmanninum frí.
Sergino Dest mun líklega spila í bakverðinum en Barcelona var nýbúið að hefja viðræður við Roberto um nýjan samning.
Athugasemdir