Fotbolti.net
21.01.14 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Eto\'o og Adebayor frammi

Yohan Cabaye átti frábæran leik fyrir Newcastle.

Yohan Cabaye átti frábæran leik fyrir Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar í enska boltanum en fjörug umferð í ensku úrvalsdeildinni er að baki.

Í fremstu víglínu er að sjálfsögðu Samuel Eto\'o sem setti þrennu í 3-1 sigri Chelsea gegn Manchester United.


Markvörður: Jack Butland, Stoke City
Hélt Stoke á floti gegn Crystal Palace en hans menn þurftu á endanum að játa sig sigraða. Hugo Lloris var flottur í rammanum hjá Tottenham en Butland fær sæti í liðinu.

Hægri bakvörður: Calum Chambers, Southampton
Var þrusuflottur gegn Sunderland. Var afar líflegur í sóknarleiknum.

Miðvörður: Vlad Chiriches, Tottenham Hotspur
Swansea átti í miklum vandræðum með að komast framhjá honum.

Miðvörður: Gary Cahill, Chelsea
Var flottur í miðverðinum hjá Chelsea í 3-1 sigrinum gegn Manchester United. Að auki átti hann þátt í tveimur af þremur mörkum þeirra bláu.

Vinstri bakvörður: Ryan Bertrand, Aston Villa
Gríðarlega traustur gegn Liverpool og hélt Raheem Sterling niðri.

Miðjumaður: Yaya Toure, Manchester City
Jordan Henderson var frábær fyrir Liverpool en nær ekki að slá Toure út. Hann skoraði sitt ellefta úrvalsdeildarmark á tímabilinu þegar City vann 4-2 sigur gegn Cardiff.

Miðjumaður: Yohan Cabaye, Newcastle United
Umferðarstjórinn á miðjunni var ótrúlega góður í sigrinum gegn West Ham.

Kantmaður: Santi Cazorla, Arsenal
Hefur oft verið týndur í leikjum á þessu tímabili en var í aðahlutverki gegn Fulham.

Kantmaður: Yannick Bolasie, Crystal Palace
Lykilmaður í sigri Palace gegn Stoke. Er farinn að fá mun meiri spiltíma hjá Tony Pulis og ekki að ástæðulausu.

Sóknarmaður: Samuel Eto\'o, Chelsea
Margir gagnrýndu Jose Mourinho fyrir að hafa Fernando Torres á bekknum. Þeir aðilar segja ekkert núna eftir þrennuna frá Eto\'o.

Sóknarmaður: Emmanuel Adebayor, Tottenham Hotspur
Hefur vaknað til lífsins á ný undir stjórn Tim Sherwood.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Yannick Bolasie hjá Crystal Palace.

Yannick Bolasie hjá Crystal Palace.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.