Fotbolti.net
21.07.26 - 13:30
Kári Snorrason

Vinicius fór í lýtaaðgerð eftir heimsmeistaramótið

Markahæsti leikmaður Brasilíu á mótinu með fjögur mörk.

Markahæsti leikmaður Brasilíu á mótinu með fjögur mörk.

Canon

Mynd: EPA

Myndir af Vinicius Jr. hafa farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum þar sem margir telja að brasilíski landsliðsmaðurinn hafi gengist undir lýtaaðgerð.

Bandaríska dagblaðið New York Post greinir frá því að Vinicius hafi farið í aðgerð á hökusvæðinu og vísar þar í brasilíska miðilinn TMC.

Samkvæmt fréttinni leitaði hann til lýtalæknisins Alessandro Alarcao í Brasilíu, sem á að hafa mótað og skerpt á hökulínu Vini.

Þá hefur hann sömuleiðis látið skeggið vaxa og eru margir netverjar að velta sér upp úr nýja útliti Brassans.
Brasilía datt út úr heimsmeistaramótinu í 16-liða úrslitum eftir tap gegn Noregi. Vini á að hafa gengist undir aðgerðina skömmu eftir tapið.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.