Íslenska kvennalandsliðið hefur leik í Undankeppni HM 2023 í dag.
Holland kemur í heimsókn á Laugardalsvöll og leikurinn hefst kl 18:45. Tékkland fær Kýpur í heimsókn í sama riðli kl 15:30.
Ísland leikur í C-riðli en það er fimm liða riðill. Hvíta-Rússland situr hjá í þessari umferð. Öll lið hafa spilað einn leik svo Ísland sat hjá í fyrstu umferð.
Hvíta-Rússland er á toppnum eftir sigur á Kýpur en Tékkland og Holland gerðu jafntefli.
HM 2023 - kvenna - Landslið
15:30 Tékkland-Kýpur (Stadion u Nisy)
18:45 Ísland-Holland (Laugardalsvöllur)
Athugasemdir