Fotbolti.net
21.10.26 - 08:35
Albert Guðmundsson

38 umferðir - Engilbert Aron special

Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov

Auglýsing
38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

Canon

Mynd: Albert Guðmundsson

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð.

Einnig kynntu þeir félagar gjafaleik sem þeir eru með í gangi og hlustendur geta tekið þátt í á Instagram. Til mikils að vinna en vinningar að þessu sinni eru 15.000 kr gjafabréf á Matarkjallarann, 2 miðar á Improv Ísland, 2 rútur af Thule, fæðubótarefni frá Ingling og gjafabréf í partípílu á Bullseye.

Fresturinn til að gera breytingar rennur út föstudaginn 23. október kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich - Nottingham Forest kl 19:00 sama dag.
Albert og Sindri mynda gott dúó með breiða skírskotun en Albert er mjög reynslumikill spilari og samkvæmt fplresearch.com besti Fantasy Premier League spilarinn á Íslandi. Sindri er reynsluminni og nálgast leikinn með örlítið öðrum hætti en þeir bestu í bransanum. Þar getur brugðið til beggja vona.

Fotbolti.net er með draumaliðsdeild fyrir lesendur þar sem er til mikils að vinna. Fyrstu verðlaun innihalda 100 þúsund kr. gjafabréf upp í ferð á enska boltann með Visitor, 12 rútur af Thule, treyju frá Boltamanninum, gjafabréf á Bullseye og gjafabréf á Matarkjallarann.

Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov

Þú finnur 38 umferðir á Instagram, TikTok og X @38umferdir.

Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Ingling, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.

Ef þú spilar Fantasy Premier League þá borgar sig að fylgjast með 38 umferðum.

Engilbert Aron (til vinstri) var annar þáttastjórnandi fyrsta Fantasy hlaðvarps á Íslandi (Fantabrögð) ásamt Gylfa Tryggvasyni

Engilbert Aron (til vinstri) var annar þáttastjórnandi fyrsta Fantasy hlaðvarps á Íslandi (Fantabrögð) ásamt Gylfa Tryggvasyni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron tók inn Evanilson og Tavernier liðsfélaga hans á hárréttum tíma en þeir félagarnir sóttu samtals 22 stig þessa umferðina

Aron tók inn Evanilson og Tavernier liðsfélaga hans á hárréttum tíma en þeir félagarnir sóttu samtals 22 stig þessa umferðina

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.