Fotbolti.net
22.01.13 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Tveir frá Liverpool

Daniel Sturridge var flottur gegn Norwich.

Daniel Sturridge var flottur gegn Norwich.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrvalslið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni hefur verið sett saman og má sjá það hér að neðan. Manchester City náði að saxa á forystu Manchester United í deildinni um liðna helgi.

Garth Crooks, sérfræðingur BBC, sá um að setja liðið saman.


Markvörður - Julio Cesar (QPR)
Fer vel af stað á nýju ári og er í úrvalsliðinu aðra vikuna í röð. David de Gea er varamarkvörður úrvalsliðsins.

Hægri bakvörður - Ben Davies (Swansea)
Var þrusuflottur gegn Stoke og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Swansea.

Miðvörður - Clint Hill (QPR)
West Ham átti hverja fyrirgjöfina á fætur annarri en Hill var eins og klettur í hjarta varnar QPR og skallaði frá eins og enginn væri morgundagurinn.

Miðvörður - Gary Cahill (Chelsea)
Stóð sig vel í sigrinum gegn Arsenal og hetjuleg tækling hans gegn Theo Walcott kom í veg fyrir að Arsenal næði að jafna.

Vinstri bakvörður - Luke Shaw (Southampton)
Reglulega koma verulega spennandi ungir leikmenn úr smiðju Southampton. Shaw fellur í þann flokk.

Miðjumaður - Jonathan de Guzman (Swansea)
Verður betri og betri í herbúðum Swansea með hverjum leiknum sem hann spilar.

Miðjumaður - Michael Carrick (Manchester United)
Enn ein klassaframmistaðan hjá Carrick sem hefur ekki fengið það lof sem hann á skilið.

Miðjumaður - David Silva (Manchester City)
Martin Jol, knattspyrnustjóri Fulham, sagði að Silva hafi gert gæfumuninn um helgina.

Sóknarmaður - Luis Suarez (Liverpool)
Úrúgvæinn var magnaður enn eina ferðina.

Sóknarmaður - Steven Fletcher (Sunderland)
Skoraði tvö mörk í 3-2 sigri gegn Wigan og hefur nú skorað 10 mörk í 21 leik.

Sóknarmaður - Daniel Sturridge (Liverpool)
Gegn Manchester United breytti hann spilamennsku Liverpool með innkomu sinni. Hann hélt uppteknum hætti gegn Norwich og er greinilega fullur sjálfstrausts.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.