Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 22. janúar 2023 19:41
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Arsenal og Man Utd: Saka bestur
Bukayo Saka var besti maður leiksins
Bukayo Saka var besti maður leiksins
Mynd: Getty Images
Bukayo Saka var besti maður leiksins er Arsenal vann Manchester United, 3-2, á Emirates í kvöld.

Saka var mjög líflegur í sóknarleik Arsenal og gerði meðal annars annað mark liðsins með góðu skoti fyrir utan teig. Hann var nálægt því að gera annað mark tuttugu mínútum yrir leikslok en boltinn fór af Christian Eriksen og í stöng.

Sky Sports gefur Saka 9 fyrir frammistöðuna og var hann valinn maður leiksins. Martin Ödegaard og Eddie Nketiah fá 8.

Marcus Rashford, David De Gea og Aaron Wan-Bissaka fá allir 8 í liði Man Utd.

Arsenal: Ramsdale (6), White (6), Saliba (6), Gabriel (6), Zinchenko (7), Partey (6), Xhaka (8), Odegaard (8), Saka (9), Martinelli (7), Nketiah (8)
Varamenn: Holding (6), Tomiyasu (6), Trossard (6)

Man Utd: De Gea (8), Wan-Bissaka (8), Varane (7), Martinez (7), Shaw (7), McTominay (7), Eriksen (6), Fernandes (6), Antony (6), Rashford (8), Weghorst (6)
Varamenn: Fred (6) Garnacho (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner