Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 22. september 2018 16:40
Rögnvaldur Már Helgason
Vigfús: Eins og æfingaleikur í janúar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var mjög lélegur fótboltaleikur, hjá báðum liðum. Þetta var eins og að horfa á æfingaleik í janúar í Egilshöll, eða Boganum. Greinilegt að bæði lið höfðu að litlu að keppa og leikurinn bar þess merki," sagði Vigfús Arnar Jósepsson, þjálfari Leiknis eftir tap gegn Þór á Akureyri í dag.

Lestu um leikinn: Þór 3 -  1 Leiknir R.

„Mér fannst rauða spjaldið verða þvæla, menn að kýtast á vellinum og kannski allt í lagi að spjalda þá báða. Þetta var eitt glímubragð og báðir stóðu upp, ekkert vesen. Dómarinn átti að gefa þeim gult spjald og láta leikinn halda áfram."

Vigfús tók við liðinu að þremur leikjum loknum í mótinu sem allir höfðu tapast. Hann er ekki ósáttur við gengi liðsins síðan þá.

„Sumarið hefur verið ágætt hjá okkur, við vorum í vondum málum framan af og vorum ekki að spila vel. Svo réttum við úr kútnum og endum deildina í sjöunda sæti og vorum í því tólfta þegar ég tók við. Ég er þokkalega sáttur við liðið og strákarnir hafa staðið sig mjög vel, þó að þessi leikur hafi ekki verið til útflutnings."
Athugasemdir
banner
banner