Fotbolti.net
22.10.13 - 12:45
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið vikunnar í enska - Suarez og Aguero frammi

Andros Townsend, Tottenham.

Andros Townsend, Tottenham.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea, Manchester City, Tottenham, Everton, Swansea og Fulham fögnuðu sigrum í ensku úrvalsdeildinni þessa umferðina en vonbrigðabyrjun Manchester United heldur áfram. Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar valið af Goal.com


Asmir Begovic, markvörður Stoke, er í rammanum eftir flotta frammistöðu í markalausu jafntefli gegn West Brom.

Í vörninni eru þrír. Billy Jones úr West Brom, Chico Flores sem átti stórleik þegar Swansea fór illa með Sunderland og Dejan Lovren sem hjálpaði Southampton að ná stigi gegn Englandsmeisturunum.

Arsenal heldur áfram að standa sig og vann sannfærandi sigur á Norwich. Mesut Özil skoraði í tvígang og Aaron Ramsey kom af bekknum og skoraði ellefta mark sitt á tímabilinu.

Eden Hazard skoraði tvívegis þegar Chelsea vann Cardiff City og Andros Townsend er í liðinu eftir að hafa skorað sitt fyrsta úrvalsdeildarmark fyrir Tottenham í 2-0 sigri gegn Aston Villa.

Magnað mark Yohan Cabaye gegn Liverpool tryggir honum sæti í liðinu en Adem Lallana, David Silva og Tata Toure voru allir nálægt því að komast í það.

Sergio Aguero skoraði tvennu fyrir Manchester City gegn West Ham en City vann þar fyrsta útisigur sinn á tímabilinu. Hann er frammi með Luis Suarez sem átti tvær stoðsendingar í 2-2 jafnteflinu gegn Newcastle.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.