Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 23. janúar 2020 08:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mourinho skaut á Man Utd: Kemur Fernandes eða ekki?
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, stoppaði aðeins við á fréttamannafundi í gær eftir 2-1 heimasigur á Norwich. Þetta var fyrsti sigur Tottenham í deildinni á nýju ári.

Fréttamaður frá Sky fór til Lisbon á dögunum til að vinna í fréttum tengdum Bruno Fernandes og hans vistaskiptum til Manchester United.

Mourinho vissi af þessu og þessi fréttamaður var á fundi Mourinho í gærkvöld. Því spurðist Mourinho fyrir um Fernandes:

„Hvernig var í Lisbon? Gaman? Var gaman í Lisbon?" Spurði Mourinho í gær.

Þessi sami fréttamaður vildi svo spyrja Mourinho út í leikinn en Mourinho vildi halda áfram að grínast:

„Er Bruno Fernandes að koma til United eða ekki?" Sagði Mourinho og glotti.

„Þú fórst til Lisbon og hann er ekki að koma? Kemur hann eða ekki?"
Athugasemdir
banner
banner
banner