Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 23. janúar 2021 17:29
Victor Pálsson
Mbappe óviss: Ég er að hugsa mig um
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe, leikmaður Paris Saint-Germain, hefur tjáð sig um eigin samningamál en hann hefur ekki enn krotað undir nýjan samning við franska félagið.

Samningur Mbappe rennur út á næsta ári en hann er enn að hugsa sig um hvort hann vilji halda áfram í París.

Frakkinn skoraði tvö mörk í gær er PSG vann sannfærandi sigur á Montpellier, 4-0 í frönsku úrvalsdeildinni.

„Ég hef fengið þessa spurningu áður. Við erum að ræða þetta við félagið," sagði þessi 22 ára gamli leikmaður við Telefoot.

„Ég er að hugsa mig um. Ef ég skrifa undir þá verður það til að festa mig hér til lengri tíma."

„Ég er mjög ánægður þar sem ég er. Stuðningsmennirnir og félagið hafa alltaf verið til staðar fyrir mig og ég mun hugsa um hvar ég vil vera á næstu árum."

„Þetta er eitthvað sem þarf að hugsa um, ég er ekki að reyna að kaupa tíma. Ef ég skrifa undir þá verð ég áfram."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner