Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. mars 2023 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Undankeppni EM í dag - Ítalía fær England í heimsókn
Mynd: Getty Images

Undankeppni EM hefst í kvöld og þrír riðlar fara af stað. Ásamt okkar riðli - J Riðli - fara C og H riðill af stað.


Í C-Riðli á Norður Makedónía heimaleik gegn Möltu og stórleikur dagsins er svo leikur Ítalíu og Englands. England hefur verk að vinna þar sem liðið hefur ekki unnið leik á Ítalíu í rúm 60 ár.

Þrír leikir fara fram í H riðli en þar má helst nefna norðurlandaslag milli Danmerkur og Finnlands.

Allir leikirnir hefjast kl 19:45.

Leikir dagsins

C Riðill

19:45 Ítalía - England
19:45 Norður Makedónía - Malta

H riðill

15:00 Kasakstan - Slovenia
19:45 Danmörk - Finnland
19:45 San Marino - Norður Írland


Athugasemdir
banner
banner
banner