Fotbolti.net
23.04.13 - 10:45
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Van Persie fyrirliði

Manchester United hefur tryggt sér Englandsmeistaratitilinn.

Manchester United hefur tryggt sér Englandsmeistaratitilinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Að þessu sinni sækjum við úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar frá Goal.com. Eins og í öllum úrvalsliðum sem gerð voru eftir nýliðna umferð er Robin van Persie í fremstu víglínu.

Hollendingurinn bauð upp á þrennu þegar Manchester United vann 3-0 sigur á Aston Villa og innsiglaði Englandsmeistaratitilinn.


Markvörður: Jussi Jaaskelainen - West Ham
Þessi 38 ára markvörður átti flottan leik og kom í veg fyrir að Wigan næði að skora.

Hægri bakvörður: Billy Jones - West Brom
Í fyrsta sinn í Domino\'s liðinu á þessu tímabili. Átti góðan leik gegn Newcastle og átti stóran þátt í jöfnunarmarkinu.

Miðvörður: David Luiz - Chelsea
Brasilíumaðurinn er sífellt að sýna meiri stöðugleika í spilamennsku sinni.

Miðvörður: Sebastien Bassong - Norwich
Var glæsilegur gegn Reading.

Vinstri bakvörður: Danny Rose - Sunderland
Líkurnar á því að Sunderland haldi sér uppi eru að aukast til muna og Danny Rose hjálpaði til.

Hægri kantur: Robert Snodgrass - Norwich
Einn besti leikmaður Norwich á tímabilinu.

Miðjumaður: Kevin Nolan - West Ham
Afskaplega mikilvægur í sigrinum á Wigan.

Miðjumaður: Sebastian Larsson - Sunderland
Fékk 8 frá Goal.com fyrir frammistöðu sína gegn Everton.

Vinstri kantur: Gareth Bale - Tottenham
Enn og aftur vinnur Bale pizzuveislu með því að komast í liðið. Átti magnaðan leik í endurkomu Spurs gegn Manchester City.

Sóknarmaður: Daniel Sturridge - Liverpool
Var í hlutverki ofurvaramanns og breytti leiknum gegn Chelsea. Liverpool kom til baka og jafnaði í blálokin.

Sóknarmaður: Robin van Persie - Manchester United
Skoraði þrennu gegn Aston Villa, þar af eitt af mörkum tímabilsins. Er nú kominn í forystuna í baráttunni um gullskóinn.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Daniel Sturridge kom flottur af bekknum.

Daniel Sturridge kom flottur af bekknum.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.