Fotbolti.net
23.07.22 - 19:12
Ívan Guðjón Baldursson

Æfingaleikir: Brentford og Forest töpuðu gegn Þjóðverjum

Jimenez fór meiddur af velli í flottum sigri Wolves

Æfingaleikir: Brentford og Forest töpuðu gegn Þjóðverjum
Canon

Mynd: Heimasíða Wolves

Úlfarnir spiluðu æfingaleik við Besiktas í dag þar sem Raul Jimenez skoraði fyrsta mark leiksins og fór svo meiddur af velli.

Daniel Podence og Pedro Neto skoruðu sitthvort markið til að innsigla þriggja marka sigur gegn sterkum andstæðingum.

Nottingham Forest og Brentford spiluðu við þýsk félög og töpuðu. Forest tapaði fyrir Union Berlin á meðan Brentford steinlná gegn Wolfsburg.

Enska félagið sem vann þýska andstæðinga sína er West Bromwich Albion sem leikur í Championship. West Brom lenti undir gegn Hertha Berlin en kom til baka og skóp sigur.

PSV Eindhoven lagði þá Real Betis að velli á meðan Willem II rústaði sterku liði Lyon með óvæntum fimm marka sigri.

Besiktas 0 - 3 Wolves
0-1 Raul Jimenez ('15)
0-2 Daniel Podence ('29)
0-3 Pedro Neto ('40)

Union Berlin 1 - 0 Nottingham Forest
1-0 J. Siebatcheu ('36)

Wolfsburg 4 - 0 Brentford
1-0 P. Wimmer ('27)
2-0 S. Bornauw ('56)
3-0 S. Bornauw ('66)
4-0 J. Kaminski ('86)

West Brom 2 - 1 Hertha Berlin
0-1 Davie Selke ('13)
1-1 John Swift ('70)
2-1 Daryl Dike ('73)

PSV Eindhoven 2 - 1 Real Betis

Willem II 5 - 0 Lyon

Mainz 1 - 1 Athletic Bilbao

Wigan 4 - 1 Sheffield Wed.

Lille 2 - 2 Las Palmas

Æfingaleikir: Brentford og Forest töpuðu gegn Þjóðverjum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.