Fotbolti.net
24.01.21 - 09:00
Victor Pálsson
Jói útherji

Aðstoðarmaður Zidane ánægður með Hazard

Aðstoðarmaður Zidane ánægður með Hazard
Canon

Mynd: Getty Images

David Bettoni, aðstoðarþjálfari Real Madrid, segir að það sé ánægja hjá félaginu með sóknarmanninn Eden Hazard.
Hazard átti góðan leik fyrir Real í gær en hann skoraði og lagði upp í öruggum 4-1 sigri á Alaves.

Hazard hefur verið mikið meiddur síðan hann kom til Real frá Chelsea árið 2019 fyrir um 150 milljónir punda.

Vonandi fyrir Real er Hazard allur að koma til en hann spilaði alls 63 mínútur í gær.

„Hann skapar mikið og er ófyrirsjáanlegur. Hann átti erfitt eitt og hálft ár vegna meiðsla og við þurfum að sýna þolinmæði," sagði Bettoni.

„Auðvitað er það erfitt hjá Real Madrid en við erum ánægðir með hann. Hann verður betri með hverjum leiknum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.