Fotbolti.net
21.07.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Gerir nýjan samning við Þýskalandsmeistarana

Gerir nýjan samning við Þýskalandsmeistarana
Canon

Mynd: EPA

Austurríski varnarmaðurinn Konrad Laimer er búinn að gera nýjan þriggja ára samning við Þýskalandsmeistara FC Bayern.
Laimer er 29 ára gamall og hefur spilað 135 leiki á þremur árum hjá Bayern, þar af lék hann 47 leiki er Bæjarar urðu tvöfaldir meistarar á síðustu leiktíð.

Laimer er hægri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað vinstra megin, sem varnartengiliður og á miðri miðjunni.

Hann er mikilvægur hlekkur í landsliði Austurríkis sem var slegið úr leik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í sumar eftir óheppilegan drátt gegn Spánverjum, sem fóru alla leið og unnu mótið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.