Fotbolti.net
21.07.26 - 09:41
Kári Snorrason

Nico Williams með 77 milljóna punda klásúlu - Vilja Summerville sem arftaka Rogers

Nýkrýndur heimsmeistari.

Nýkrýndur heimsmeistari.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Man Utd leiðir baráttuna um Kone, Arsenal endurvekur áhuga á Nico Williams og Summerville er á blaði hjá Aston Villa. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Manchester United leiðir kapphlaupið um franska miðjumanninn Manu Koné (25), leikmann Roma, en Arsenal hefur sömuleiðis áhuga á leikmanninum. (L'Équipe)

Arsenal hefur einnig endurvakið áhuga sinn á kantmanninum Nico Williams (23), leikmann Athletic Bilbao. Hann varð heimsmeistari með Spáni í fyrradag og er sagður vera með 77 milljóna punda klásúlu í samningi sínum. (Teamtalk)

West Ham hefur hafnað öðru tilboði Roma í sóknarmanninn Crysencio Summerville (24). Fyrsta tilboðið hljóðaði upp á 46 milljónir evra og vinnur ítalska félagið nú að lokatilboði sínu. (Sky Sports Italia)

Aston Villa er með Summerville á blaði sem mögulegan arftaka Morgan Rogers (23), sem er á leið til Chelsea. (Talksport)

Barcelona hefur boðað Ferran Torres (26), hetju Spánar á sunnudag, á fund til að ræða framtíð hans. Samningur spænska framherjans rennur út eftir eitt ár og hefur PSG sýnt honum áhuga. (Mundo Deportivo)

Ipswich hefur náð samkomulagi við Fulham um kaup á miðverðinum Issa Diop (29) fyrir um 10 milljónir evra. (Foot Mercato)

Newcastle og Leeds eru meðal þeirra félaga sem fylgjast með framherjanum Franculino Dju (22) hjá Midtjylland. Danska félagið vill fá yfir 21 milljón punda fyrir leikmanninn. (Teamtalk)

AC Milan er með augastað á Konstantinos Karetsas (18) ungstirni Genk. Ítalska félagið ætlar að gera hann að einu helsta skotmarki sínu næsta sumar. Milan gæti þó þurft að selja Rafael Leao (27) til að fjármagna kaupin. (Gazzetta dello Sport)
Kone er eftirsóttur.

Kone er eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Á förum frá West Ham.

Á förum frá West Ham.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.