Fotbolti.net
21.07.26 - 09:17
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Er Aron elstur? Gylfi hækkar á listanum og mörg met í hættu

Aron Einar Gunnarsson, 37 ára nýliði í deildinni.

Aron Einar Gunnarsson, 37 ára nýliði í deildinni.

Canon

Mynd: Þór

Er Aron Einar Gunnarsson elsti útispilarinn sem spilar sinn fyrsta leik í efstu deild karla? Í það minnsta tveir markverðir hafa verið eldri en hann þegar þeir léku fyrst í deildinni.

Gylfi Þór Sigurðsson klifrar upp listann yfir leikjahæstu Íslendingana og er nú búinn að jafna metin við gamlan landsliðsfélaga. Framarar stefna á félagsmet í markaskori, Stjarnan hefur aldrei fengið verri útreið í deildinni, KR gæti slegið áður ósnertanlegt met Skagamanna og Aron Sigurðarson skorar og skorar.

Úrslitin í 15. umferð:
Þór - Víkingur 2-1
Valur - Fram 2-3
ÍBV - KA 2-2
KR - Stjarnan 5-0
FH - Breiðablik 0-0
Keflavík - ÍA 5-2

Staðan: Víkingur 40, KR 35, Fram 33, Breiðablik 26, Keflavík 19, Valur 19, ÍBV 16, Stjarnan 15, ÍA 15, KA 14, FH 12, Þór 11.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.