Fotbolti.net
21.07.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jhon Durán í Benfica (Staðfest)

Jhon Durán í Benfica (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Portúgalska stórveldið Benfica er búið að ganga frá félagaskiptum fyrir Jhon Durán sem mun leika hjá félaginu á lánssamningi út tímabilið.
Jhon Durán fer til Benfica
TENGT EFNI

Jhon Durán fer til Benfica

Durán er 22 ára framherji frá Kólumbíu sem gerði garðinn frægan með Aston Villa og var keyptur til Al-Nassr í Sádi-Arabíu fyrir um 80 milljónir evra í janúar 2025, þar sem hann fékk risasamning.

Durán skoraði 12 mörk í 18 leikjum hjá Al-Nassr en er sagður hafa verið með hegðunarvandamál svo hann var lánaður út til Fenerbahce og Zenit, en átti erfitt uppdráttar.

Kólumbíumaðurinn er sagður taka á sig launalækkun til að fara á lán til Benfica. Portúgalska stórveldið deilir launakostnaðinum með Al-Nassr, en Durán er ennþá með samning við Al-Nassr sem gildir til 2030.

Það er kaupmöguleiki í lánssamningnum en ekki hefur verið greint frá upphæðinni sem Benfica þyrfti að borga.

Jhon Durán í Benfica (Staðfest)
Canon

Mynd: Al-Nassr

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.