Fotbolti.net
24.01.25 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ederson ekki á leið til Man City í þessum mánuði

Ederson hér til hægri.

Ederson hér til hægri.

Canon

Mynd: EPA

Ederson er leikmaður sem Manchester City hefur lengi haft áhuga á, en hann er ekki á leið til félagsins í þessum mánuði.

City hefur verslað mikið í mánuðinum en Ederson er ekki á leið til félagsins.
Ederson er brasilískur miðjumaður sem er í lykilhlutverki hjá Atalanta á Ítalíu. Atalanta er í titilbaráttu og í topp átta í Meistaradeildinni. Félagið vill ekki eyðileggja fyrir sér með því að selja einn sinn besta mann.

Ederson, sem er 25 ára, er í dag talinn einn besti djúpi miðjumaðurinn í Evrópu.

Hann á að baki tvo landsleiki fyrir Brasilíu en þeir verða eflaust fleiri í framtíðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.