Fotbolti.net
03.10.26 - 19:27
Magnús Atlason

Jón Dagur: Frammistaðan góð heilt yfir

Auglýsing
Jón Dagur Þorsteinsson

Jón Dagur Þorsteinsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland vann sannfærandi 3-0 sigur á Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag. Fótbolti.net náði viðtali af Jóni Degi Þorsteinssyni eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Búlgaría
"Sáttur með þrjá punkta, halda hreinu, frammistaðan góð heilt yfir."

Jón Dagur kom aftur inn í byrjunarliðið í dag. "Hvernig fannst þér þú spila í dag?"

"Bara fínt, mér fannst ég mjög líflegur, sérstaklega í fyrri hálfleik. Vantaði kannski aðeins upp á herslumuninn á seinasta þriðjung, en bara fín frammistaða í dag."

Ísland hefur nú tengt saman tvo 3-0 sigra í röð eftir svekkjandi jafntefli gegn Eistlandi í fyrstu umferð.

"Við byrjuðum ekki riðilinn eins og við vildum og að ná að halda núna tvisvar í röð hreinu gefur okkur helling."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.