Fotbolti.net
03.10.26 - 19:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Bellingham getur orðið einn besti leikmaður sögunnar"

„Bellingham getur orðið einn besti leikmaður sögunnar"
Canon

Mynd: EPA

Roy Keane segir að Jude Bellingham gæti orðið einn besti leikmaður fótboltasögunnar.

England valtaði yfir Króatíu 7-0 í Þjóðadeildinni í dag. Jude Bellingham fór hamförum en hann skoraði eitt og lagði upp þrjú mörk.
„Hann á meira inni. Bellingham getur orðið einn besti leikmaður sögunnar. Hann er mikill leiðtogi fyrir England," sagði Keane.

England er með sex stig eftir þrjá leiki í 2. sæti riðils þrjú í A-deild. Eins og er er liðið þremur stigum á eftir Spáni og þremur stigum á undan Króatíu. Það er hálfleikur í leik Spánar og Tékklands þar sem Spánn er 2-0 yfir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.