03.10.26 - 19:41
Magnús Atlason
Hörður Björgvin: Vonandi getum við byggt ofan á þetta
Auglýsing

Hörður Björgvin Magnússon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hörður Björgvin Magnússon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland vann sannfærandi 3-0 sigur á Búlgaríu í Þjóðadeildinni. Fótbolti.net náði tali af Herði Björgvini Magnússyni eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Búlgaría
"Mjög góður sigur, við náðum að setja öflugt mark í fyrri hálfleik sem breytti leiknum aðeins. Gott að klára þetta síðan í lokin."
Hvernig nálgaðist Ísland seinni hálfleikinn öðruvísi í þessum leik heldur en í Eistlandsleiknum?
"Við höfðum trú á sjálfum okkur og við spiluðum okkar bolta og það loksins kom í dag. Við hittum á góðan dag loksins og vonandi getum við byggt ofan á þetta."
Arnar gerði sex breytingar á byrjunarliðinu frá leiknum gegn Lúxemborg. Hörður kom inn í liðið í dag.
"Gaman að koma inn og hjálpa liðinu og hvað þá að byrja þessa sókn þar sem við skoruðum þetta fyrsta mark þannig að það gefur helling fyrir framhaldið."
"Er þreytan farin að segja til sín?"
"Nei alls ekki. Það er bara gaman að vera með liðinu í svona langan tíma. Þetta er náttúrulega öðruvísi gluggi fyrir okkur. Fjórir leikir, við þurfum aðeins að dreifa álaginu og spila réttu spilunum."