Fotbolti.net
24.02.14 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Tveir frá Chelsea, Man City og Man Utd

Jordan Henderson er í liðinu

Jordan Henderson er í liðinu

Canon

Mynd: Getty Images

Garth Crooks hjá BBC á Englandi, hefur valið lið helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni en liðið er ansi áhugavert.
Tveir leikmenn koma frá Chelsea, Manchester City og Manchester United að þessu sinni en Chelsea sigraði Everton með einu marki gegn engu, Manchester City sigraði Stoke með einu marki gegn engu og Manchester United vann Crystal Palace 0-2.

Nikica Jelavic framherji Hull City og John Ruddy markvörður Norwich City eru þá einnig í liðinu eftir góða frammistöðu um helgina.

Jordan Henderson er fulltrúi Liverpool í liðinu en hann gerði tvö mörk er Liverpool sigraði Swansea með fjórum mörkum gegn þremur.

Patrice Evra og Wayne Rooney eru fyrir hönd Manchester United. Branislav Ivanovic og John Terry fyrir Chelsea og Yaya Toure og Vincent Kompany fyrir hönd nágranna þeirra í Man City.

Arsenal er þá með einn fulltrúa en Olivier Giroud, sem átti magnaðan leik gegn Sunderland þar sem hann gerði tvö mörk og lagði upp eitt.

Lið vikunnar að mati BBC:

Markvörður: John Ruddy (Norwich)

Vörn: Patrice Evra (Manchester United), Vincent Kompany (Manchester City), John Terry (Chelsea), Branislav Ivanovic (Chelsea).

Miðja: Yaya Toure (Manchester City), Kevin Nolan (West Ham United), Jordan Henderson (Liverpool)

Sókn: Nikica Jelavic (Hull City), Wayne Rooney (Manchester United), Olivier Giroud (Arsenal)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.