„Mér fannst frammistaðan góð þó úrslitin hafi ekki fallið með okkur. Við vörðumst vel í dag og það var uppleggið að efla og bæta varnarleikinn okkar og mér fannst við gera mjög vel varnarlega á móti gríðarlega sterku Valsliði og ég held að enginn þurfi að skammast sín fyrir frammistöðuna. “
Voru fyrstu viðbrögð Sigurðs Ragnars Eyjólfssonar annars af þjálfurum Keflavíkur eftir 1-2 tap Keflavíkur gegn Val fyrr í kvöld.
Voru fyrstu viðbrögð Sigurðs Ragnars Eyjólfssonar annars af þjálfurum Keflavíkur eftir 1-2 tap Keflavíkur gegn Val fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 2 Valur
Valsmenn komust yfir í fyrri hálfleik og leiddu þegar gengið var til hálfleiks. Snemma í síðari hálfleik bætti Birkir Már Sævarsson við marki fyrir Val eftir klaufagang í vörn Keflavíkur sem hafði fjölmörg tækifæri til að koma boltanum frá eftir hornspyrnu. Er þetta einkennandi fyrir lið í svipaðri stöðu og Keflavík?
„Held að það einkenni lið okkar að við erum með tiltölulega litla reynslu í efstu deild og eiginlega bara mjög litla. Ég held til dæmis að við séum samanlagt með minni reynslu en bara Almarr Ormarsson í Valsliðinu í efstu deild. Engu að síður erum við æstir í að fá að sanna okkur og spila við bestu lið landsins.“
Hraðmótinu í maí fer senn að ljúka og landsleikjahlé tekur við. Munu Sigurður og Eysteinn þjálfarar Keflavíkur nýta hléið vel til að þjappa hópnum enn betur saman?
„Gott núna að fá pásuna. Það er búið að vera mikið leikjaálag á leikmönnum og ég hef áður sagt að við fengum degi minna í hvíld heldur en Breiðablik, KA og Fylkir í þeim leikjum og það eru allt leikir sem tapast illa hjá okkur.“
Sagði Sigurður Ragnar en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir