Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   þri 25. maí 2021 21:47
Egill Sigfússon
Kári Árna: Ég mun reyna að plata Ragga til að koma!
Kári Árna, fyrirliði Víkinga í kvöld
Kári Árna, fyrirliði Víkinga í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur fékk Fylki í heimsókn í kvöld í 6. umferð Pepsí Max-deildar karla þar sem liðin gerðu 2-2 jafntefli.

„Við vorum svolítið off í dag, eftir á hyggja var stigið ágætt en úr því sem komið var er grátlegt að vinna ekki leikinn. Við vorum að skapa mikinn usla í hornum og markmaðurinn ver tvisvar frábærlega, fyrst frá sjálfum mér og svo Viktori. Þegar Helgi skorar frábært mark á leikurinn bara að vera búinn og við verðum að sýna meira en við gerðum þar."

Sagði Kári Árnason sem var ekki nógu sáttur með leik Víkinga í dag.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  2 Fylkir

Kári er búinn að draga sig úr næsta landsliðsverkefni og ástæðan er sú að hann er í áhættuhópi og vil ekki taka sénsinn á að hann fái Covid en hann segist að sjálfsögðu vera klár í næstu landsliðsverkefni.

„ Já það er nú bara útaf ég er í áhættuhópi, ég er astmasjúklingur og ég er ekki til í að fórna síðusta hluta ferilsins ef ég skildi fá Covid og það er svona ástæðan fyrir að ég sagði mig úr honum. Ef ég hefði verið bólusettur hefði ég mætt með bjöllur á en þetta er staðan, það er bara of mikið undir fyrir mig persónulega og Víking líka."

„Þeir koma með mikil gæði að sjálfsögðu og það er gaman fyrir þessa stráka að æfa með fleirum sem hafa verið lengi í þessu og kunna þetta. Við sjáum til hvort ég nái að plata Ragga til að koma, ég mun reyna!"

Sagði Kári að lokum aðspurður út í það að Ragnar Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson séu búnir að vera æfa með Víkingum undanfarið.
Athugasemdir
banner
banner
banner