Fotbolti.net
07.07.26 - 21:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þjálfari Egypta með fast skot á FIFA - „Þessum leik var klárlega hagrætt og allur heimurinn sá það"

Þjálfari Egypta með fast skot á FIFA - „Þessum leik var klárlega hagrætt og allur heimurinn sá það"
Canon

Mynd: EPA

Hossam Hassan, landsliðsþjálfari Egyptalands, var brjálaður eftir að liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum á HM eftir ótrúlegt tap gegn Argentínu í kvöld.

Egyptaland náði tveggja marka forystu en Argentína kom til baka og Enzo Fernandez skoraði sigurmarkið þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Það var dæmt mark af Egyptum í stöðunni 1-0 og Argentína fékk aukaspyrnu hinu megin á vellinum. Egyptar vildu fá vítaspyrnu þegar Mohamed Salah féll í teignum og Fernandez skoraði sigurmarkið í kjölfarið.

„Ég mun segja það sem ég er að hugsa sama hverjar afleiðingarnar verða. Þessum leik var klárlega hagrætt og allur heimurinn sá það," sagði Hassan.

„Ég vil segja eitt enn. Ef þeir vilja svona mikið að Argentína vinni, hvers vegna er verið að kalla á alla til að taka þátt?"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.