Fotbolti.net
07.07.26 - 22:04
Ívar Björgvinsson

Sölvi eftir sigur: Kom okkur á óvart að meistarar frá Ungverjalandi myndu mæta svona

Auglýsing
Sölvi Geir Ottesen

Sölvi Geir Ottesen

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur tók á móti ungversku meisturunum Györ í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fyrri leik liðanna. Leiknum lauk með 1-0 sigri Víkinga en sá sigur hefði getað verið töluvert stærri. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 0 Györ

„Þegar boltinn datt í netið í uppbótartíma var ég virkilega feginn. Við vorum heldur betur búnir að gera atlögu að markinu og mér fannst við hafa átt klárlega skilið að minnsta kosti eins stigs forskot. Við vorum með stjórn á öllum sviðum leiksins, virkilega flott frammistaða hjá okkur, hugaðir á boltann og við létum ekki pirra okkur að við vorum ekki að skora úr þessum stöðum. Það er mjög auðvelt að fara að missa hausinn en við gerum okkur grein fyrir því að þetta eru tveir leikir og við þurfum að halda skipulaginu, aganum varnarlega og vera þolinmóðir. Frammistaðan verðskuldaði stærri sigur en virkilega sáttur með hana.''

Eina mark leiksins kom í uppbótartíma síðari hálfleiks en leið Sölva alltaf eins og markið myndi koma?

„Já maður hefur alltaf trú á því og eftir 1-0 markið þá vildi ég bara halda áfram að spila okkar leik og ekkert að breyta og falla til baka. Við vildum ná inn einu öðru marki þarna í lokin sem við komumst mjög nálægt með færinu hans Valda í lokin. En ég er ótrúlega sáttur með hugarfar leikmannanna inni á vellinum.''

Györ eru ungverskir meistarar og unnu deildina fram yfir stórlið Ferencváros. Þrátt fyrir það skapaði liðið sér varla færi í dag og virtist leikplanið bara vera að liggja til baka og verjast.

„Er ekki sagt að þú spilar ekki betur en andstæðingurinn leyfir? Þeir lögðu upp með það að fara inn varkárir í þennan leik og voru í 5-4-1 blokk á móti okkur og ætluðu ekkert að opna sig á móti okkur og bara loka á markið. það var að takast þar til undir lokin, það kom okkur smá á óvart að meistarar frá Ungverjalandi myndu mæta svona. Það sýnir bara hvaða virðingu þeir sýna Víkingum og við tókum því bara sem hrósi en við búumst við allt öðruvísi leik úti.''

Víkingar gerðu nokkrum sinnum tilkall til þess að fá víti í leiknum, fannst Sölva liðið eiga að fá víti í leiknum?

„Við áttum allavega að fá eina, þeir (dómararnir) sögðu að þetta hafi verið soft þegar Elías var rifinn niður þarna í fyrri hálfleik, ég á eftir að sjá það aftur. Mér var sagt að hendin þegar Helgi gaf fyrir hafi verið klár hendi. Útskýringarnar sem við fengum frá dómarateyminu var sú að þeir voru ekki með myndavélina sem náði vinklinum á því.''

Nikolaj Hansen skoraði eina mark leiksins eftir að hafa verið fyrstur á frákast en við það fékk hann spark í andlitið.

„Þeir sem eru búnir að fylgjast með íslenskri knattspyrnu í einhvern tíma vita það að Niko er að fara að setja hausinn í boltann sama hvað það eru margir takkar þarna fyrir framan hann. Niko er grjótharður og fórnar sér fyrir liðið og gerir allt í sínu valdi til þess að liðið njóti góðs af því. Virkilega vel gert hjá honum og hugrakkur að setja hausinn í þetta.''

Víkingar fara til Ungverjalands með eins marks forystu, hvað þarf liðið að gera þar til þess að tryggja sæti í næstu umferð?

„Við þurfum bara að sýna sama skipulag og standard sem við sýndum í dag, að berjast fyrir hvorn annan í öllum stöðum. Það sem ég sá er að fókusinn hvarf aldrei, við vorum on it allan tímann og það er það sem ég er mest hrifinn af hvernig við vorum allar 90 mínúturnar með fullan fókus og þannig þurfum við að vera í seinni leiknum.''

Sigrinum fagnað.

Sigrinum fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Niko kom boltanum í netið í uppbótartíma.

Niko kom boltanum í netið í uppbótartíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.