Óli Jó: Sem betur fer er fótboltinn svona
Auglýsing

Óli Jó var ánægður með sigurinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Jó var ánægður með sigurinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var að vonum kampakátur eftir 5-3 sigur sinna manna gegn Fjölni á Origo-vellinum í kvöld.
<i>„Ég er ánægður með stigin og það að gera fimm mörk er nokkuð gott á okkar vísu. Mér fannst fyrri hálfleikurinn nokkuð rólegur hjá okkur en í seinni hálfleik vorum við mun hvassari og áttum að sigla þessu rólega heim.\"</i> sagði Óli eftir leik.

Lokamínúturnar voru ansi fjörugar í þessum leik og komu til að mynda fjögur mörk á síðustu fimm mínútunum.
„Stundum er fótboltinn svona sem betur fer, annars væri lítið varið í hann. Menn gleyma að dekka eins og gengur og gerist en sem betur fer lenti þetta okkar megin.\"
Valur situr á toppi deildarinnar með þriggja stiga forskot á Stjörnuna en þessi lið mætast einmitt á miðvikudaginn næstkomandi.
„Nú förum við bara að undirbúa okkkur fyrir það verkefni. Þetta verður geggjaður leikur tveggja frábærra liða og það eru leikir sem að við viljum spila.\" sagði Óli að lokum.