Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 26. janúar 2020 13:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Saint-Maximin svaraði á Twitter: Minn versti leikur
Allan Saint-Maximin.
Allan Saint-Maximin.
Mynd: Getty Images
Franski kantmaðurinn Allan Saint-Maximin hefur komið öflugur inn í lið Newcastle á þessu tímabili.

Hann var keyptur síðasta sumar frá Nice og skrifaði þá undir sex ára samning við félagið.

Saint-Maximin hefur verið heilt yfir nokkuð góður fyrir Newcastle, en hann átti hins vegar ekki sinn besta leik í gær þegar Newcastle gerði markalaust jafntefli gegn Oxford United í enska FA-bikarnum. Einn stuðningsmaður Newcastle gekk svo langt á Twitter að segja að Saint-Maximin hefði verið að spila sinn versta leik fyrir félagið.

Saint-Maximin sá það og ákvað að svara því. Hann skrifaði: „Ég ætla ekki að ljúga, það er satt að þetta hafi verið minn versti leikur hingað til. Engar afsakanir. Nú ætla ég að leggja enn harðar að mér til að komast í betra stand. Takk fyrir stuðninginn."

Honum hefur verið hrósað fyrir tístið og það viðhorf sem hann sýnir.


Athugasemdir
banner
banner
banner