Fotbolti.net
26.02.13 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Toure-bræðurnir í liðinu

Gareth Bale faðmar Andre Villas-Boas í gærkvöldi.

Gareth Bale faðmar Andre Villas-Boas í gærkvöldi.

Canon

Mynd: Getty Images

Í gærkvöldi lauk umferð í ensku úrvalsdeildinni og að vanda birtum við úrvalslið vikunnar í boði Domino\'s.

Eins og oft áður er það Garth Crooks sérfræðingur BBC sem sér um valið en eftir þessa umferð heldur Manchester United tólf stiga forystu.


Markvörður - Jussi Jaaskelainen (West Ham)
Joe Hart og Mark Schwarzer bönkuðu fast á dyrnar en frammistaða Finnans gegn Tottenham var frábær. Spurs hefði getað skorað fimm til sex mörk. Það þarf sérstaka frammistöðu til að komast í liðið þrátt fyrir að hafa fengið þrjú mörk á sig.

Varnarmaður - Maynor Figueroa (Wigan)
Enn og aftur er Wigan að vakna til lífsins á lokasprettinum. Figueroa hefur áður verið í fallbaráttunni og virðist kunna vel á hana. Hann skoraði og lagði upp um helgina.

Varnarmaður - Rio Ferdinand (Manchester United)
Roy Hodgson landsliðsþjálfari verður að fara að taka frammistöðu Ferdinand alvarlega. Hann var flottur gegn Real Madrid í síðustu viku og svo aftur gegn QPR. Hraðinn hefur minnkað en leiksilningurinn aukist.

Varnarmaður - Kolo Toure (Manchester City)
Það er ansi langt síðan Kolo Toure hefur komist í lið umferðarinnar. Frammistaða hans gegn Chelsea sýnir þó að honum er treystandi í stórleikjum.

Varnarmaður - Rafael Da Silva (Manchester United)
Brasilíumaðurinn mun ekki skora aftur svona flott mark á lífsleiðinni. Virðist vera að þróast í öflugan leikmann fyrir United og jafnvel landslið Brasilíu. Hæfileikarnir eru til staðar.

Miðjumaður - Jack Wilshere (Arsenal)
Eini alvöru leiðtoginn í liði Arsenal. Stuðningsmenn Arsenal óttast að hann fari líkt og Cesc Fabregas og Robin van Persie. Skiljanlegur ótti.

Miðjumaður - Gareth Bale (Tottenham)
Sá er á flugi. Hann hefur skorað 19 mörk í öllum keppnum og þau mörk gætu verið fleiri ef ekki væri fyrir nokkrar magnaðar markvörslur. Nánast einn síns liðs hefur Bale náð að koma Tottenham í þriðja sæti deildarinnar. Kæmi mér ekki á óvart ef Barcelona og Real Madrid tækju upp veskið.

Miðjumaður - Yaya Toure (Manchester City)
Ef City ætlar að eiga von í titilslagnum þarf Toure að eiga góða leiki. Hann hefur leikið undir getu á tímabilinu en var flottur gegn Chelsea.

Sóknarmaður - Dimitar Berbatov (Fulham)
Mark hans gegn Stoke var magnað. Hvernig hann horfði yfir öxlina á sér þegar boltinn var í loftinu og nálgaðist hann, áður en hann tók boltann á lofti framhjá Begovic.

Sóknarmaður - Romelu Lukaku (West Brom)
Meðan WBA er með Romelu Lukaku getur Peter Odemwingie það sem hann vill. Hvað mun gerast eftir tímabilið? Ekki ólíklegt að hann muni ýta Fernando Torres frá Chelsea.

Sóknarmaður - Aroune Kone (Wigan)
Fílabeinsstrendingurinn átti mjög góðan leik. Þess má geta að fimm af átta mörkum Kone á tímabilinu hafa komið á útivöllum.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Yaya Toure fagnar.

Yaya Toure fagnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.