Frakkarnir í leikmannahópi Manchester United, Paul Pogba og Anthony Martial, eru samtaka innan sem utan vallar.
Þeir hafa báðir núna ákveðið að raka skafa á sér kollinn og eru þeir núna báðir sköllóttir.
Enginn fótbolti er í gangi núna út af kórónuveirunni. Stefnt er að því að hefja aftur leik á Englandi 30. apríl, en spurning er hvort að það sé raunhæft.
Áður en hlé var gert á fótbolta á Englandi þá var Manchester United á miklu skriði og hafði ekki tapað í 11 leikjum í röð. Martial hefur gert 11 mörk í 23 deildarleikjum á þessu tímabili á meiðsli hafa strítt Pogba mikið.
Hér að neðan má sjá myndir af þeim með nýja hárgreiðslu. Hægt er að sjá myndirnar betur með því að ýta á Twitter-færsluna.
Pogba and Martial have both gone bald. The Premier League ain’t ready for this new partnership. 🔥 pic.twitter.com/Fy4WdPFklv
— Devils of United 🔰 (@DevilsOfUnited) March 25, 2020
Athugasemdir