Fotbolti.net
26.11.13 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið vikunnar í enska - Mignolet í markinu

Simon Mignolet er í markinu.

Simon Mignolet er í markinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Enski boltinn byrjaði aftur að rúlla um helgina eftir landsleikjahlé. Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar sem að þessu sinni er af vefsíðunni fanatix.com.

Manchester City, Chelsea og Arsenal áttu fína helgi og úrvalsliðið litast af því.


Markvörður - Simon Mignolet, Liverpool
Belgíski markvörðurinn var í stuði gegn Everton og varði hvað eftir annað úr dauðafærum. Simon fékk þrjú mörk á sig en það er ekki hægt að kenna honum um þau.

Hægri bakvörður - Joel Ward, Crystal Palace
Var fullur sjálfstrausts þegar Palace vann Hull City. Ógnaði stöðugt á hægri vængnum.

Miðvörður - Per Mertesacker, Arsenal
Þjóðverjinn átti frábæra viku, skoraði sigurmarkið gegn Englandi og átti stórleik þegar Arsenal varðist vel gegn Southampton.

Miðvörður - Chico Flores, Swansea City
Fékk það verkefni að halda Dimitar Berbatov niðri. Gerði það og Swansea sótti þrjú stig á Craven Cottage.

Vinstri bakvörður - Patrice Evra, Manchester United
Þetta var ekki frábær frammistaða hjá vörn Englandsmeistarana en varafyrirliðinn hefur átt frábært tímabil og stóð fyrir sínu.

Hægri kantur - Jesus Navas, Manchester City
Tvö mörk og stoðsending í 6-0 slátrun gegn Tottenham. Svona frammistöðu vildu stuðningsmenn City sjá þegar Navas var keyptur frá Sevilla.

Miðjumaður - Ramires, Chelsea
Sýndi frábæra varnarvinnu gegn West Ham.

Miðjumaður - Steven N’Zonzi, Stoke City
Stoke vann góðan sigur gegn Sunderland. N’Zonzi átti góðan leik og náði að skora mark.

Vinstri kantur - Eden Hazard, Chelsea
Eftir hæga byrjun á tímabilinu er Hazard að komast í rétta gírinn, sama gír og gerði það að verkum að hann var tilnefndur sem leikmaður ársins í deildinni síðasta tímabil.

Sóknarmaður - Sergio Aguero, Manchester City
Enn önnur frábær frammistaðan hjá Aguero sem nú er efstur á lista yfir markahæstu menn deildarinnar.

Sóknarmaður - Olivier Giroud, Arsenal
Franski landsliðsmaðurinn heldur uppteknum hætti en hann hefur verið magnaður á þessu tímabili.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Jesus Navas og félagar fóru illa með Tottenham.

Jesus Navas og félagar fóru illa með Tottenham.

Canon

Mynd: Getty Images

Giroud heldur áfram að spila fantavel.

Giroud heldur áfram að spila fantavel.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.