Fotbolti.net
27.08.13 - 10:20
Magnús Már Einarsson

Úrvalslið vikunnar í enska - Fjórir frá Arsenal

Olivier Giroud er í liði vikunnar.

Olivier Giroud er í liði vikunnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Önnur umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina en henni lauk með jafntefli Manchester United og Chelsea í gærkvöldi.

Úrvalslið vikunnar er klárt en að þessu sinni er það Garth Crooks hjá BBC sem stillir upp liðinu. Arsenal á fjóra fulltrúa í liðinu eftir 3-1 útisigur á Fulham um helgina.


Markvörður: Ben Foster (WBA)
Simon Mignolet var öflugur í marki Liverpool gegn Aston Villa en Ben Foster fær markvarðarstöðuna í liðinu eftir frábæran leik gegn Everton.

Hægri bakvörður: Branislav Ivanovic (Chelsea)
Chelsea lagði upp með að spila sterkan varnarleik á Old Trafford í gær og Ivanovic var öflugur þar.

Miðvörður: Bacary Sagna (Arsenal)
Sagna fór úr hægri bakverðinum í hjarta varnarinnar gegn Fulham í fjarveru Laurent Koscielny. Leysti verkefnið frábærlega.

Miðvörður: Kolo Toure (Liverpool)
Toure hefur byrjað tímabilið af krafti með Liverpool og hann var eins og klettur í vörninni gegn Aston Villa.

Vinstri bakvörður: Ashley Cole (Chelsea)
Chelsea á báða bakverðina í liði vikunnar eftir að hafa haldið hreinu á Old Trafford.

Miðjumaður: Andros Townsend (Tottenham)
Townsend fékk tækifæri í byrjunarliði Tottenham gegn Swansea og nýtti það með því að sýna góða frammistöðu.

Miðjumaður: Aaron Ramsey (Arsenal)
Miðjan hjá Arsenal var frábær í öruggum útisigri á Fulham og Ramsey átti góðan dag.

Miðjumaður: Santi Cazorla (Arsenal)
Cazorla var einnig frábær á miðjunni hjá Arsenal. Leikmaður sem getur sýnd snilldar tilþrif með boltann.

Framherji: Fraizer Campbell (Cardiff)
Tvö mörk í sigri Cardiff á Manchester City segja alla söguna.

Framherji: Olivier Giroud (Arsenal)
Lukas Podolski skoraði tvö fyrir Arsenal gegn Fulham en Giroud fær sæti í liðinu. Skoraði fyrsta markið og lagið upp það þriðja á laglegan hátt.

Framherji: Daniel Sturridge (Liverpool)
Sturridge skoraði laglegt mark fyrir Liverpool gegn Aston Villa og það dugði til sigurs.
Kolo Toure er í vörninni.

Kolo Toure er í vörninni.

Canon

Mynd: Getty Images

Fraizer Campbell er í framlínunni.

Fraizer Campbell er í framlínunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.