Roma vill Casemiro - Napoli og Juventus fylgjast með Höjlund - Úlfarnir búast við tilboðum í Cunha
   þri 28. janúar 2025 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Flick vill ekki missa Eric García þrátt fyrir sögusagnir
Mynd: EPA
Hansi Flick þjálfari Barcelona segist ekki vilja missa Eric García í janúarglugganum þrátt fyrir háværa orðróma.

Barcelona þarf að losa sig við leikmenn til að skrá nýja leikmenn í hópinn og var útlit fyrir að García yrði seldur í janúar til að skapa pláss.

Girona og Como hafa sýnt miðverðinum mikinn áhuga en Flick sló á sögusagnirnar eftir stórsigur gegn Valencia um helgina.

„Ég vil halda Eric Garcia, hann er fjölhæfur leikmaður sem veitir okkur stöðugleika á vellinum. Þið sáuð aftur í dag hversu góður hann er," sagði Flick meðal annars.

García er 24 ára gamall og hefur verið hjá Barcelona í þrjú og hálft ár, síðan hann kom á frjálsri sölu frá Manchester City.

García átti frábært tímabil á láni hjá Girona á síðustu leiktíð en hann er aðeins með eitt og hálft ár eftir af samningi hjá Barcelona.

Hann á 19 A-landsleiki að baki fyrir Spán eftir að hafa verið lykilmaður upp yngri landsliðin.
Athugasemdir
banner